25.03.2014
Athugið fundurinn verður kl. 16.00 !
Verður haldinn þriðjudagsinn 8. apríl í húsi Hákarla Jörundar kl. 17.00. Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn Ferðamálafélags Hríseyjar
Lesa meira
31.03.2014
Hríseyjarferjan
Sævar fer í slipp á morgun 1. apríl vegna bilunar í skrúfubúnaði. Á meðan mun Máni frá Dalvík sjá um ferðir. Ekki er vitað hvað viðgerðin tekur
langan tíma.
Lesa meira
26.03.2014
Tæplega 70 manns mættu á íbúafund í Hrísey í dag. Á
fundinum var kynnt skýrsla með niðurstöðum frá málþingi sem haldið var í
september sl. Það er hópur fólks sem kallar sig áhugahóp um framtíð Hríseyjar
og hefur verið starfandi frá miðjum ágúst 2013 sem stóð fyrir því. Málþingið
var með svokölluðu þjóðfundarsniði þar sem unnið var í hópum og niðurstöður
kynntar í restina, síðan þá hefur hópurinn verið að vinna úr niðurstöðunum og
var afraksturinn kynntur í dag. Sérstaklega ánægjulegt var að sjá hvað margir
mættu á fundinn og var almenn
ánægja með hann.
Lesa meira
20.03.2014
Fyrirhuguðum íbúafundi frestað til miðvikudagsins 26. mars kl. 16.00 í Íþróttamiðstöðinni. Kynntar verða
niðurstöður málþings. Boðið upp á súpu og brauð í lok fundar kl. 18.00.Hér má nálgast skýrslu með samantekt frá málþingi Mætum öll og látum okkur málin varða. Áhugahópur um framtíð Hríseyjar.
Lesa meira
04.03.2014
"Kötturinn"
sleginn úr tunnunni við Júllabúð kl. 11.00. Á eftir ganga nemendur
Hríseyjarskóla um eyjuna og syngja fyrir íbúa. Öskudagsball í SÆBORG kl.
15.30.Verð inn á ballið er 200 krónur en innifalið í verðinu er
nammipoki og svali. Veitt verða verðlaun fyrir flottasta, skemmtilegasta
og frumlegasta búninginn.Hlökkum til að sjá ykkur öll.Kveðja foreldrafélag Hríseyjarskóla.
Lesa meira
28.02.2014
Laugardaginn 1. mars breytist áætlun ferjunnar.
Hér má sjá áætlunina
Lesa meira
04.02.2014
Júllabúð lokar klukkan 16:30 á morgun 05.02 vegna íbúafundar í Hlein.
Við hvetjum alla til að mæta.Kv. Júlli
Lesa meira
30.01.2014
Kæru viðskiptavinir.Júllabúð mun opna aftur á morgun föstudaginn 31. jan. kl. 17:00Við höfum tekið þá ákvörðun að lækka verð á ýmsum nauðsynjavörum umtalsvert með von um að fleiri sjái sér fært að nýta betur þjónustu í heimabyggð. Við höfum hafið samstarf við Aðalbakarí á Siglufirði og munum við vera með breitt vöruúrval frá þeim í boði og fyrsta sending verður hér við, opnun, en um er að ræða margrómað bakarí. Einnig höfum við hafið samstarf við Kjarnafæði og munum við bjóða upp á verð á þeirra vörum sem er fáséð utan stórmarkaða.Við hlökkum til þess að sjá ykkur sem oftast.Kveðja Júlli
Lesa meira
29.01.2014
Íbúafundur verður haldinn í Hrísey miðvikudaginn 5. febrúar 2014 klukkan 17.00 í Hlein. Á fundinn mæta bæjarfulltrúar auk bæjarstjóra. Dagskrá fundarins: Skýrsla hverfisráðs Hríseyjar fyrir starfsárið 2013. Kynning frá áhugahópnum um framtíð Hríseyjar. Kosning til Hverfisráðs. Önnur mál og umræður. Þeir sem vilja bjóða sig fram til starfa í hverfisráðinu er bent á að
tala við Lindu Maríu á skrifstofu Akureyrarbæjar fyrir 4. febrúar.
Lesa meira
27.01.2014
Kæru viðskiptavinir. Af óviðráðanlegum orsökum verður Júllabúð lokuð næstu daga, við stefnum
á að opna aftur fyrir helgina, nánari upplýsingar síðar.Júlli
Lesa meira