Eyfirski safnadagurinn
22.04.2014
Verður haldinn laugardaginn 3. maí. Viðburðurinn hóf göngu sína árið 2007 og hefur verið haldinn árlega
síðan. Á þessum degi opna söfn og sýningar við Eyjafjörð dyr sínar fyrir
gestum og gangandi á fyrsta laugardeginum í maí undir heitinu Eyfirski
safnadagurinn. Markmiðið er að vekja athygli á fjölda fróðlegra og
forvitnilegra safna sem eru við Eyjafjörð. Enginn aðgangseyrir er að
söfnunum á Eyfirska safnadeginum.