Fréttir

Inflúensubólusetning í Hrísey

Lesa nánar
Lesa meira

Haustfagnaður í Hrísey

Hér má sjá auglýsingu fyrir Haustfagnaðinn okkar. Mætum og höfum gaman saman.
Lesa meira

Breytingar á áætlun Hríseyjarferjunnar

ATH 1. september er ferja kl. 23.00 frá Hrísey og 23.20 frá Árskógssandi upphringiferð. Panta þarf ferðina fyrir kl. 21.45.Sjá áætlun
Lesa meira

Afgreiðslutími Íþróttamiðstöðvar

Afgreiðslutími breytist 26. ágúst. Athugið að annar opnunartími er á þreksalnum.Sjá hér
Lesa meira

Frá Júllabúð

Kæru viðskiptavinir.  Eins og margir vita mun Júllabúð taka við rekstri Brekku núna á haustmánuðum.  Þar með verður verslunin flutt í nýtt húsnæði og verða einhverjar breytingar gerðar á henni.  Þar sem nú er stutt í mánaðarmótin erum við farin að pakka hér í búðinni og verður afgreiðslutíminn á næstu dögum því með öðru sniði en venja er.   Frá og með fimmtudeginum 21. ágúst og fram að flutningum verður Júllabúð opin sem hér segir. Mánudaga - Föstudaga: 10:00 - 14:00 Laugardag: 12:00 - 14:00 Sunnudag: LOKAР
Lesa meira

Bifreiðaskoðun í Hrísey

Bílaeigendur athugið!   Bifreiðaskoðun fer fram í Hrísey 21. ágúst. Skoðunin fer fram í Slökkvistöðinni milli kl. 10:00 og 12:00. Frumherji
Lesa meira

Athugið

Laugardagskvöldið 9. ágúst fer ferjan frá Árskógssandi kl. 23.45. Eyfar ehf.
Lesa meira

Fiskisúpukvöld á Dalvík

Farið verður frá Hrísey kl. 19.30 og til baka frá Dalvík kl. 00.30 á Darra EA 75.Vinsamlegast pantið í síma 695-0077. Takmarkaður fjöldi.Ferðamálafélag Hríseyjar.
Lesa meira

Tónleikar í Hríseyjarkirkju

Fimmtudagskvöldið 7. ágúst kl. 20.00. Söngvararnir Rúnar Eff og Marína Ósk mæta og flytja ljúfa og fallega tóna eftir hina ýmsu tónlistarmenn. Á dagskránni eru þekkt íslensk og erlend dægur- og popplög, sem sum hver eru sett í nýjan búning. Miðaverð kr. 2.000 - ATH enginn posi.
Lesa meira

Skralli trúður í fjörtíu ár.

Í dag fagnar Skralli trúður 40 ára afmæli sínu og eyðir deginum með Aðalsteini Bergdal föður og samstarfsmanni á heimili þeirra í Hrísey. Skralli kom fyrst fram á Edrúhátíð á Hrafnagili verslunarmannahelgina 1974. Hann kom inn á síðustu stundu vegna forfalla, fann trúðabúning í leikhúsinu á Akureyri og hjólaði í fullum skrúða fram á Hrafnagil. Uppistandið gekk mjög vel en á eftir var hann umkringdur 100 börnum sem klipu, spörkuðu og tróðu á tánum á honum. Þar ákvað hann að þetta yrði ekki endurtekið en það fór aðeins öðruvísi og er Skralli enn í fullu fjöri 40 árum síðar. Óskum honum innilega til hamingju með daginn. 
Lesa meira