11.05.2015
Þriðjudaginn 26. maí kl. 17:00 í Hlein
1. Kosning fundarritara og fundarstjóra. 2. Skýrsla stjórnar hverfisráðs fyrir starfsárið 2014. 3. Kosning til hverfisráðs. 4. Önnur mál. Á fundinum verða ýmiss málefni Hríseyjar
rædd. Bæjarstjóri og fulltrúar frá Akureyrarbæ mæta á fundinn. Fjölmennum og tökum þátt í umræðunni. Þeir sem vilja gefa kost á sér til setu í
ráðinu tilkynni það á skrifstofuna í Hrísey sími: 466-1762, með tölvupósti á lindamaria@akureyri.is eða til Lindu
Maríu í síma 891-7293 fyrir hádegi á fimmtudeginum 21. maí.
Hverfisráð Hríseyjar.
Lesa meira
10.05.2015
Þá er búið að stofna hlutafélag um verslunarrekstur í Hrísey og mun það
heita Hríseyjarbúðin ehf. Kennitala er komin í hús og þá þarf að láta
hendur standa fram úr ermum. Hluthafafundur verður haldinn um næstu
helgi og mun hlutafé þá verða aukið og hefur verðandi hluthöfum verið
sent fundarboð og nánari upplýsingar. Á morgun kl. 17.00 munum við byrja
að mála í búðinni og ef einhvern langar að leggja lið þá er endilega að
mæta á staðinn.
Lesa meira
05.05.2015
DELTA TOTAL á Hjalteyri í Hrísey og á Siglufirði. Á morgun miðvikudag verður hópur listamanna að vinna í Sæborg og verður afraksturinn sýndur á föstudaginn 8. maí kl. 16:00.
Sjá nánar hér og hér
Lesa meira
20.04.2015
Um fjörtíu manns sóttu opinn kynningarfund um fyrirhugaða stofnun félags um verslunarrekstur í Hrísey, sem haldinn var í dag. Á fundinum voru kynnt drög að rekstraráætlun og stofnkostnaði. Góðar umræður sköpuðust og fundarmenn almennt mjög jákvæðir. Á fundinum var hægt að gefa vilyrði fyrir hlutafé í hinu óstofnaða félagi og voru nokkrir sem staðfestu hlut sinn. Ákveðið var að gefa frest til mánudagsins 27. apríl fyrir verðandi hluthafa til að skrá sitt framlag til félagsins. Ef nægt hlutafé safnast verður í framhaldi af því boðað til stofnfundar. Áætlað er að leggja upp með að lágmarki 3.000.000 í hlutafé.
Hægt er að senda fyrirspurnir eða staðfestingu á hrisey@hrisey.net eða hafa samband við undirritaða ef áhugi er á að gerast hluthafi.
Guðrún Þorbjarnardóttir 692-4910Hrund Teitsdóttir 694-1285Ingólfur Sigfússon 866-8190Ingimar Ragnarsson 867-5655Kristín Björk Ingólfsdóttir 866-9490Linda María Ásgeirsdóttir 891-7293Þröstur Jóhannsson 862-3817
Lesa meira
15.04.2015
Opinn
kynningarfundur vegna áforma um verslunarrekstur í Hrísey verður haldinn mánudaginn
20. apríl kl. 17:00 í Hlein. Á
dagskrá er kynning á hugmyndinni og útfærsla hennar. Hægt
er að gerast hluthafi á fundinum.Áhugafólk um
verslun í Hrísey.
Lesa meira
09.04.2015
Kæru íbúar, sumarhúsaeigendur og aðrir velunnarar Hríseyjar
Að undanförnu hefur hópur fólks í Hrísey rætt möguleika á rekstri verslunar í eynni. Ýmsar leiðir hafa verið ræddar og hvaða form gæti verið á slíkum rekstri.
Eftir nokkra skoðun eru nú uppi áform um stofnun hlutafélags um rekstur verslunar í Hrísey.
Lesa meira
08.04.2015
Aðalfundur Ferðamálafélags Hríseyjar verður haldinn miðvikudaginn 22. apríl kl. 17:00 í húsi Hákarla Jörundar. Rétt til fundarsetu með málfrelsi, tillögu- og atkvæðisrétti hafa
skuldlausir félagar í FMH. Þá hafa gestir stjórnar FMH heimild til
fundarsetu með málfrelsi. Dagskrá aðalfundar: 1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár. 2. Reikningar félagsins fyrir liðið reikningsár. 3. Kosningar í trúnaðarstöður. 4. Kosning skoðunarmanns reikninga. 5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál.Stjórnin.
Lesa meira
07.04.2015
Íslandspóstur tilkynnir breytingu á póstþjónustu í Hrísey. Frá og með 1.
apríl 2015 verður afgreiðsla póstsins i úthringiverinu í Hlein og
afgreiðslutími verður frá kl. 11:00 - 14:00 alla virka daga. Síminn er
825-1429. Upplýsingar veitir þjónustuver í síma 580-1200.
Lesa meira
01.04.2015
Laugardaginn kl. 14:00 - 17:00 verður flóamarkaður í Sæborg.
Opið í Gallerí Perlu kl. 15:00 - 17:00.
Lesa meira
31.03.2015
Hér má sjá sumarstörf hjá Akureyrarbæ
Lesa meira