Bæjarstjórnarfundur í Hrísey

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar heldur fund sinn þriðjudaginn 29.október í íþróttamiðstöðinni í Hrísey.

Er fundurinn opinn áhorfendum og hefst hann klukkan 16:00.

Eftir fund verður boðið upp á kaffi og bakkelsi í tilefni þess að 20 ár eru frá því Hríseyjarhreppur og Akureyrarkaupstaður sameinuðust.