Ungmennafélagið Narfi auglýsir badmintonæfingar fyrir alla 13 ára og eldri

Fyrsta æfing verður í íþróttamiðstöðinni miðvikudaginn 13. nóvember kl. 17:00 – 18:30. Högni Harðarson, þjálfari hjá badmintondeild KA á Akureyri, mun mæta á fyrstu æfingarnar, kenna grundvallaratriði í badminton og koma okkur af stað. Stefnt er svo að því að hafa vikulegar æfingar á þriðjudögum.Fyrsta æfing verður í íþróttamiðstöðinni miðvikudaginn 13. nóvember kl. 17:00 – 18:30. Högni Harðarson, þjálfari hjá badmintondeild KA á Akureyri, mun mæta á fyrstu æfingarnar, kenna grundvallaratriði í badminton og koma okkur af stað. Stefnt er svo að því að hafa vikulegar æfingar á þriðjudögum.

Nánar verður rætt um útfærslu og æfingagjöld á fyrstu æfingunni, en ekkert æfingagjald verður innheimt fyrir fyrstu æfinguna.

Hvetjum alla áhugasama til að mæta. 

Athugið: Æfingarnar eru líka fyrir fullorðna!
Umf. Narfi