Tilkynning frá Norðurorku
13.06.2016
T I L K Y N N I N G UM HEITAVATNS - ROF
Þjónustuver: 460-1300
Yfirverkstjóri: 896-3358
Bilanavakt hitaveitu eftir kl. 16:00: 892-7305
Vegna vinnu við dælustöð, verður lokað fyrir HEITA VATNIÐ í Hrísey á morgun, þriðjudag 14. júní ´16 frá kl. 10:00 og fram eftir degi.
Ábending til húsráðenda
- Hafa þarf í huga að loft getur komist á kerfið þegar vatni er hleypt á að nýju. Sérstaklega getur þurft að huga að sérhæfðum búnaði hitakerfa húsa, s.s. gólfhitakerfum, hitalögnum í plönum og dælum þeirra, t.d. með því að stöðva þær á meðan vatnsleysi varir. Kerfin eiga þó að vera útbúin þannig að þessi hætta sé í lágmarki.
- Bregðast þarf við lofti í kerfum með loftæmingu á ofnum, dælum og öðrum búnaði sem loft getur sest í. Einnig er nauðsynlegt að huga að öryggisloka sem getur opnast þegar vatni er hleypt á ef stjórnlokar á grind eru stirðir.
- Húsráðendum er bent á að við viðgerðir eða endurbætur á stofnkerfum og/eða heimlögnum kunna óhreinindi að fara af stað í lögnum þegar vatni er hleypt á. Því er nauðsynlegt að skola kerfið vel út með því að láta vatn renna um stund. Best er að útskolun fari fram sem næst inntaksstað sé þess kostur.
- Sé húsráðandi í vafa um hvernig bregðast á við ofangreindum atriðum skal haft samband við pípulagningarmeistara hússins.