Sumarstörf við Íþróttamiðstöðina í Hrísey
Sumarstörf við Íþróttamiðstöðina í Hrísey
Íþróttamiðstöðin í Hrísey óskar eftir sumarstarfsmanni í 50-70% starf.
Helstu verkefni eru:
- Öryggisgæsla.
- Þjónusta við gesti staðarins.
- Gæsla og þjónusta í búningsklefum.
- Þrif á húsnæði og útisvæði
- Afgreiðsla.
- Þrif og umsjón tjaldsvæðis.
Menntunar- og/eða hæfniskröfur:
- Gerð er krafa um ríka þjónustulund ásamt því að eiga auðvelt með að umgangast börn sem fullorðna.
- Góður samstarfsvilji.
- Kröfur eru gerðar til umsækjenda að þeir hafi góða sundkunnáttu og standist hæfnispróf sundstaða samkvæmt reglum um öryggi á sundstöðum.
- Reglusemi.
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Kostur er að umsækjandi hafi áður unnið við sundlaug.
- Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Íþróttamiðstöðin í Hrísey er reyklaus vinnustaður
Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar Akureyrar um jafnréttismál við ráðningu í störfin.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar í síma 460-1060 á milli kl 11:00 og 16:00 virka daga.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Elín H. Gísladóttir í síma 461-4455 eða netfangi: elin@akureyri.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is
Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu umsókna stendur til boða í þjónustuveri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9..
Umsóknarfrestur er til og með 7. mars 2019