Sjósund á Hríseyjarhátíð 2009
18.07.2009
Laugardaginn 18. júlí kl. 10.00 Synt verður í tveimur flokkum: Keppnisflokkur og skemmtiflokkur. Í skemmtilflokki er leyfilegt að synda í neoprani og í raun hvernig sem er. Met verða einungis skráð í keppnisflokki, þá bæði kvenna og karla. Bátar verða á sundinu til að fylgjast með fólkinu. Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á mrh@hrisey.net með upplýsingum um flokk, nafn og símanúmer.