Pub Quiz á Brekku

Upphitun fyrir þorrablótið verður í Brekku föstudagskvöldið 11. febrúar kl. 21:00. Þá verður keppt í hinni geysivinsælu spurningarkeppni "Pub Quiz". Tilvalið fyrir gesti og gangandi að mæta og taka þátt.  Aðgangseyrir er kr. 250.- sem rennur beint í kaup á vinningum. 
Spyrlar eru að þessu sinni hið eldklára keppnislið Helgu Jónsdóttur en það skipa ásamt Helgu, Guðrún Þorbjarnardóttir og Pétur Steinþórsson. Gaman er að segja frá því að Helga er elsti Hríseyingurinn og varð hún níræð á dögunum, hún mætir alltaf á Pub Quiz.

Sjáumst hress á Brekku.