Önnur badmintonæfing
19.11.2013
Ungmennafélagið Narfi stóð fyrir badmintonæfingu í síðustu viku og mættu 11 áhugasamir badmintoniðkendur á æfinguna og höfðu gaman af. Önnur æfing verður miðvikudaginn 20. nóvember kl. 17-18:30.
Högni Harðarson, þjálfari hjá badmintondeild KA á Akureyri, mætir einnig á þessa æfingu. Allir áhugasamir 13 ára og eldri hvattir til að mæta.
Umf. Narfi