Málþing í Hrísey

Hvað hefur þú til málanna að leggja? Áhugahópur um framtíð Hríseyjar boðar til málþings laugardaginn 14. september.Umræðuefni fundarins verða m.a.:Atvinnumál, byggðaþróun, þjónusta við íbúa, samgöngur, sumarhús, afþreying, ferðaþjónusta, heilbrigðismál,umhverfismál svo eitthvað sé nefnt.Hópurinn hvetur alla til að mæta á fundinn og taka þátt í umræðum eða bara til að hlusta á það sem aðrir hafa að segja, þetta er fundur þar sem allir eiga erindi sem láta sér málefni Hríseyjar varða.Fundurinn verður haldinn laugardaginn 14. september í Íþróttamiðstöðinni í Hrísey og hefst kl. 12:00 og lýkur klukkan 17:00.Á fundinn hafa boðað komu sína fulltrúar frá bæjarstjórn Akureyrarbæjar og Einingu Iðju. Þingmönnum og fleirum hefur einnig verið boðin þátttaka. Skráning á fundinn er hér og  í síma 864-1426. Í tengslum við fundinn og störf hópsins hefur verið sett af stað skoðanakönnun sem allir eru beðnir að svara. Hún er ekki eingöngu fyrir Hríseyinga heldur alla áhugasama. Hlekkur á skoðanakönnun. Hægt er að nálgast útprentað eintak í Júllabúð.