Kveikt á jólatrénu í Hrísey
04.12.2014
Í gær var kveikt á jólatrénu í Hrísey og var það Stella Kristín
Júlíusdóttir sem kveikti. Um fjörtíu manns mættu á þennan viðburð og
fengum við tvo skemmtilega gesti sem sungu og dönsuðu með okkur í kring
um tréð.Það kom hins vegar skýrt fram
hjá þeim að þeir hefðu stolist til að koma og meira að segja fengið
lánaðan bát á Árskógssandi til að geta verið með okkur því
jólasveinarnir koma ekki til byggða strax. En koma þeirra vakti mikla
gleði hjá litla fólkinu.
Á eftir var bauð Júllabúð upp á rjúkandi heitt súkkulaði og smákökur í Brekku og var mjög notalegt að fá heitt súkkulaði eftir að dansa úti.
Skemmtileg stund í Hrísey.
Sjá myndir
Á eftir var bauð Júllabúð upp á rjúkandi heitt súkkulaði og smákökur í Brekku og var mjög notalegt að fá heitt súkkulaði eftir að dansa úti.
Skemmtileg stund í Hrísey.
Sjá myndir