Kveikt á jólatrénu
01.12.2011
Í dag 1. desember kl. 17.00 var kveikt á jólatrénu. Tréð kemur frá Akureyrarbæ en Ferðamálafélagð hefur skipulagt þennan viðburð undanfarin ár. Gengið var í kringum tréð og sungnir nokkrir jólasöngvar. Á eftir bauð Júllabúð upp á heitt súkkulaði og smákökur. Myndir má sjá hér