Hríseysk bókakynning í Brekku

Út er komin bókin "Ég skal vera dugleg" eftir Lovísu Maríu Sigurgeirsdóttur (Geira og Elsu dóttir). Lóa Maja mun byrja kynningarferðalag sitt í Hrísey nánar tiltekið í Brekku, á föstudagskvöldið 24. apríl kl. 21:00Til allrar hamingju er það ekki hlutskipti margra fimm ára gamalla barna að dvelja langdvölum á sjúkrahúsi, fjarri fjölskyldu og vinum. Það fékk þó Lovísa María Sigurgeirsdóttir frá Hrísey að reyna og hér rifjar hún upp dvöl sína á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þegar hún var lítil stelpa upp úr 1960. Á einlægan hátt lýsir  Lovísa María líðan sinni innan veggja sjúkrahússins og þeim heimi sem þar var, heimi sem einkenndist jafnt af æðruleysi og örvæntingu - sorgum og sigrum. Hún segir frá söknuðinum, framandleikanum og kynnum sínum af börnum og gömlu fólki sem hún tengdist órjúfanlegum böndum. Sumir náðu sér og kvöddu með bros á vör - aðrir kvöddu þetta líf.  Lóa Maja fékk bót meina sinna en gleymir aldrei Tóta og öllum hinum sem kenndu henni að meta hinar margvíslegu hliðar mannlífsins.Myndir