Hríseyjarskóli í verðlaunasæti í verkefni Landsbyggðarvina.

Hríseyjarskóli hefur í vetur tekið þátt í verkefni Landsbyggðarvina, en Landsbyggðarvinir er félag sem býður nokkurm skólum ár hvert upp á verkefni þar sem unnin er hugmyndavinna til aðstyrkja heimabyggð þeirra skóla sem valdir eru hvert sinn. Yfirskrift verkefnisins er: Sköpunargleði – Heimabyggðin mín, Nýsköpun, Heilbrigði og Forvarnir. Nemendur í eldri deild (8., 9. og 10. bekk) tóku þátt í verkefninu og var það unnið í samfélagsgreinum. Vinnan á haustönninni var einstaklingsvinna þar sem nemendur skrifuðu ritgerðir. Vinnan fólst í því að ræða um kosti byggðarlagsins en koma jafnframt með tillögur til úrbóta á þvi sem betur mætti fara. 
Fjórar ritgerðir voru sendar inn í ritgerðarsamkeppni. Þeir fjórir nemendur sem skólinn sendi inn riterðir frá lentu saman í verðlaunasæti.
Þeir eru: Einar Örn Gíslason, Jara Sól Ingimarsdóttir, MónikaSól Jóhannsdóttir og Rúnar Freyr Júlíusson. 
Verðlaunaafhending fór fram í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 18. janúar. Voru nemendur, foreldrar, skólastjóri og umsjónarkennari verkefnisins viðstaddir afhendinguna. Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra var einnig viðstaddur og afhenti verðlaunin. 
Verðlaun voru veitt fyrir 1. – 4. sæti. Þeir skólar sem hlutu verðlaun voru: 
1. sæti: Grunnskólinn í Hofgarði í Öræfasveit. 
2. sæti: Hríseyjarskóli. 
3. sæti: Víðstaðaskóli í Hafnarfirði. 
4. sæti: Grunnskólinn á Hólmavík. 
Verkefni sem þetta er kjörinn vettvangur fyrir nemendur að koma skoðunum sínum og hugmyndum á framfæri og hefur það mikla þýðingu fyrir skólann, bæði fyrir nemendur að leggja sitt lóð á vogarskálarnar í hugmyndavinnu fyrir samfélagið sem og að vekja athygli á sérstöðu skólans og okkar fámenna samfélags. Á vorönn verður haldið áfram með verkefnið þar sem nemendur útfæra betur eina hugmynd sem upp kom og verður það unnið í hópum.
Hér má sjá myndir frá athöfninni.