Fjöldi gesta á heimasíðu.

Þann 28. janúnar var þessi síða formlega sett í loftið og eru gestir nú orðnir 2027. Heimasíðan er búin að vera í loftinu í 41 dag og þá eru að meðaltali 49 manns að skoða hana á dag. Þetta eru mjög ánægjulegar tölur miðað við að engar ferðamannaupplýsingar eru komnar inn á síðuna. Það er heldur ekki búið að markaðssetja síðuna með markvissum hætti. Textinn sem á fara á síðuna er að mestu leyti tilbúinn, en eftir er að láta lesa hann yfir.Við viljum ítreka það að allar upplýsingar, athugasemdir, myndir, greinar og tillögur frá ykkur eru vel þegnar. Vinsamlegast setjið ykkur í samband við Lindu Maríu Ásgeirsdóttur eða sendið inn póst. Netfangið er mrh@hrisey.net , það er neðst á forsíðunni.