Fjáröflunarbingó Björgunarsveitar Hríseyjar 2. nóvember.

Í Hrísey er starfandi Björgunarsveit sem sér jafnframt um sjúkraflutninga í eyjunni. Við erum vel mönnuð og erum með gamlan sjúkrabíl sem hefur nýst okkur vel í sjúkraflutningum. Sjúkrabörur sem við notumst við eru hins vegar komnar til ára sinna og uppfylla ekki öryggiskröfur nútímans. Nú ætlum við félagar í Björguna

rsveit Hríseyjar að fara af stað með söfnunarátak fyrir nýjum börum. Nú leitum við til fyrirtækja og einstaklinga því þetta er eitthvað sem snertir okku

r öll og við þurfum að hafa í lagi. Þeir sem vilja styrkja sveitina beint er bent á reikning sveitarinnar 0177-05-12154 Kennitala581088-2569.

Við verðum með fjáröflunarbingó 2. nóvember kl. 20.30 í Sæborg, glæsilegir vinningar.
Sýnum samhug og styðjum gott málefni