Áramótabrenna og flugeldasýning á gamlársdag
03.01.2011
Fjölmenni var á áramótabrennunni í Hrísey á gamlársdag. Þar var boðið upp á heilmikla flugeldasýningu sem var í boði ýmissa fyrirtækja og einstaklinga í eynni. Viljum við fyrir hönd Hríseyinga þakka þessum aðilum fyrir góða sýningu.