Ánægjuvogin - styrkur íþrótta
29.01.2013
niðurstöður
rannsókna og hugleiðingar um skipulagt íþróttastarf fyrir börn og ungmenni.
Ánægjuvogin er könnun sem UMFÍ og ÍSÍ stóðu að í
sameiningu á stöðu íþróttastarfs, ánægju iðkenda, stöðu áfengis og
tóbaksnotkunar og fleira meðal sambandsaðila í 8.-10.bekk.
Fimmtudaginn 31.janúar munu UMFÍ og ÍSÍ standa í
sameiningu fyrir fundi í Háskólanum á Akureyri í sal N 102 og hefst fundurinn
klukkan 17:00. Þar mun Dr. Viðar Halldórsson, félagsfræðingur, m.a. ræða
um hvort að íþróttahreyfingin sé að standast áskoranir nútímasamfélags eða
eingöngu að þjálfa til árangurs. Viðar mun styðjast við niðurstöður
rannsóknarinnar Ánægjuvogin sem Rannsókn og greining gerði fyrir UMFÍ og ÍSÍ.
Þátttaka
er ókeypis og öllum heimil.