Afmælissýning í Hrísey
28.11.2012
Hefurðu séð
bleika hvalinn?Listamennirnir
Yun og Rubin hafa dvalið í Gamla skóla í Hrísey að undanförnu og unnið að
sköpun sinni í boði afmælisnefndar Akureyrarbæjar. Pang Rui Yun frá Singapúr og
Jonas Rubin frá Danmörku skoða í verkum sínum samspil manns og náttúru með því
að nota þá orku sem býr í umhverfinu. Rýnt er í tengsl mannlegrar tilveru og
náttúrunnar með því að blanda saman ýmsum hráefnum og því sem af gengur í
daglegu lífi. Sýningin ber yfirskriftina Hefurðu séð bleika hvalinn? og
verður opin föstudaginn 30. nóvember kl. 16.00 - 20.00, laugardaginn 1. desember og sunnudaginn
2. desember frá kl. 12.00 - 16.00. Sýnt verður í Sæborg og húsi Hákarla Jörundar. Sjá auglýsingu